Sigurvegarinn Birgir Leifur Hafþórsson kátur með dóttur sinni, Birgittu Sóley, í Grímsnesinu í gær. Mynd Róbert Reynisson
,,Það var ekki hægt að óska sér betri endurkomu,“ sagði sigurreifur Birgir Leifur Hafþórsson við DV eftir sigurinn á Íslandsmótinu í höggleik í gær. Birgir Leifur kláraði hringina fjóra í Kiðjaberginu á pari og hafði þriggja högga forystu á næsta mann.
Birgir Leifur var mjög ánægður með sína frammistöðu undir lokin þegar veðurguðirnir voru farnir að taka í taumana. ,,Aðstæður voru orðnar gríðarlega erfiðar þannig ég er rosalega sáttur við minn leik. Bæði meðvindur og mótvindur voru erfiðir að ráða við en ég hélt mínu striki á meðan hinir í kringum mig voru að klúðra. Það var leiðinlegt að sjá þeirra vegna en auðvitað sætt fyrir mig,“ sagði Birgir Leifur og brosti hringinn.
Hann er virkilega ánægður með Kiðjabergsvöllinn. ,,Þetta var alveg stórglæsilegt mót og frábær umgjörð. Bara virkilega gaman að sjá hversu vel var staðið að þessu,“ sagði Birgir Leifur en hann var þó ekkert mættur til að skoða landslagið að meta skrokinn eftir langvarandi meiðsli.
,,Ég skrái mig bara til leiks þegar ég tel að ég geti unnið og ég ætlaði alltaf að vera með í baráttunni hérna. Auðvitað er ég að prófa mig aðeins áfram líka. Þetta landslag tók vel á skrokkinn en þetta lofar allt saman rosalega góða og ég er bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Birgir Leifur sem stefnir út á úrtökumótin fyrir Evrópumótaröðina í nóvember.
Hann segist enn geta bætt sig og er bara ánægður með það. ,,Vill maður ekki alltaf gera betur? Maður viðurkennir seint að maður sé fullkominn. Maður er í þessu til að bæta sig því alltaf vill maður verða betri,“ sagði Birgir Leifur Hafþórsson, Íslandsmeistari í Höggleik árið 2010.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
