Elsta og virtasta stórmót í golfinu, opna breska meistaramótið, hófst í morgun. Aftur er komið að elsta golfvelli heims, St. Andrews-vellinum í Skotlandi, að halda mótið en það hefur farið þar fram á fimm ára fresti frá árinu 1990 og alls 27 sinnum. Tiger Woods sækist eftir sínum fjórða sigri á opna breska. Hann hefur unnið síðustu tvö mótin á St. Andrews, árin 2000 og 2005.
100 ár frá sigri heimamanns
„Gamli völlurinn“ á St. Andrews er elsti golfvöllur í heimi. Fyrstu skráðu gögn um staðinn eru að golfkylfur hafi verið keyptar þar árið 1506 en opna breska hefur verið haldið þar frá 1873. Fyrst var keppt á opna breska árið 1860 og er því mótið 150 ára gamalt í ár. Við völlinn stendur hið fornfræga vallarhús The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews en þó mega margir klúbbar auk almennings spila á vellinum.
Þetta verður í 28. skipti sem opna breska er haldið á St. Andrews. Bandaríkjamönnum hefur liðið afar vel á vellinum en sex af síðustu átta mótum hafa Bandaríkjamenn unnið. Síðasti Bretinn til að vinna var Englendingurinn Nick Faldo árið 1990 en heimamaður hefur ekki hrósað sigri á St. Andrews síðan árið 1910.
Tiger kann vel við sig
Tiger Woods er mættur til leiks á opna breska og hefur eytt síðustu dögum í að æfa sig á vellinum sem hann kann svo vel við. Síðustu tvö opnu bresku sem haldin hafa verið á St. Andrews hefur hann unnið með yfirburðum. Fyrir tíu árum þegar Tiger var aðeins 24 ára gamall vann hann opna breska á St. Andrews með skorinu nítján undir pari. Það met stendur enn þann dag í dag sem lægsta skor nokkurs manns á öllum risamótunum fjórum.
Tiger hefur unnið opna breska meistaramótið þrisvar sinnum og á að baki fjórtán sigra á risamótum. Síðustu tvö ár hafa verið honum erfið vegna meiðsla og vandamála heima fyrir svo vægt sé til orða tekið. Hann hefur ekki unnið mót frá því hann hrósaði sigri á opna bandaríska árið 2008. Síðasta mót sem hann tók þátt í var opna bandaríska á Pebble Beach-vellinum þar sem hann sýndi að hann hefur engu gleymt. Hann fór þó illa að ráði sínu á lokadeginum og endaði í fjórða sæti en frammistaða hans þar lofar góðu fyrir opna breska.
Heimilislífið hefur engin áhrif
Tiger er að skilja við konu sína, Elin Nordegren, eftir stórfellt framhjáhald en hann sagði á blaðamannafundi að vandamálin heima fyrir hefðu engin áhrif á spilamennsku hans. „Það hefur einfaldlega engin áhrif. Hingað er ég kominn til að keppa á stórmóti. Þetta er opna breska meistaramótið á St. Andrews, ég meina, það verður ekki betra en þetta. Þetta er heimili golfsins,“ sagði Tiger við fréttamenn.
Hann hefur litlar áhyggjur af því hvað öðru fólki finnst um hann og hans gjörðir. „Hei, fólki má finnast það sem það vill. Allir mega hafa sína skoðun. Flest fólkið sem ég hef verið í kringum á þeim mótum sem ég hef spilað hefur verið alveg frábært,“ sagði Tiger en hann ætlar sér sigur á mótinu.
„Ég vil vinna sama hvað. Það væri frábært, alveg einstaklega frábært. Mín bíður samt mikil vinna en sigrarnir mínir hérna hafa verið með þeim stærri á mínum ferli þar sem þetta er nú heimili golfsins. Það er frábært að vera á meðal þeirra miklu meistara sem hafa unnið hér og að vera hluti af þeirri sögu skiptir mig miklu máli,“ sagði Tiger Woods.
Sigurvegarar opna breska síðustu tíu árin
Ár - Kylfingur, Þjóðerni - Völlur (Skor)
2009 Stewart Cink, Bandaríkin - Turnberry (-2, vann í umspili)
2008 Pádraig Harrington, Írland - Royal Birkdale (+3)
2007 Pádraig Harrington, Írland - Carnoustie (-7, vann í umspili)
2006 Tiger Woods, Bandaríkin - Royal Liverpool (-18)
2005 Tiger Woods, Bandaríkin - St. Andrews (-14)
2004 Todd Hamilton, Bandaríkin - Royal Troon (-14, vann í umspili)
2003 Ben Curtis, Bandaríkin - Royal St. George (-1)
2002 Ernie Els, Suður-Afríka - Muirfield (-6, vann í umspili)
2001 David Duval, Bandaríkin - Royal Lytham & St. Annes (-10)
2000 Tiger Woods, Bandaríkin - St. Andrews (-19, met á öllum stórmótum)



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
