Bandaríski kylfingurinn John Daily vakti óskipta athygli þegar hann mætti í kvöldverð fyrir þá kylfinga sem unnið hafa Opna breska meistaramótið í golfi. Þar skartaði hann einum þeim skrautlegasta jakka sem sést hefur á meðal kylfinga og skar hann sig úr hópi kylfinga sem eru fremur íhaldssamari í klæðnaði.
Daily vann mótið árið 1995 og var á meðal Tiger Woods, Nick Faldo, Arnold Palmer og Tom Watson á mynd sem var tekin á átjándu flöt gamla vallarins á St. Andrews. Það er þó von á því að golfáhugamenn fái að sjá fleiri skrautlegar uppákomur því þær fregnir hafa borist að spænski snillingurinn Sergio Garcia ætli sér að leika í spænska landsliðsbúningnum eftir sigur liðsins á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.
Hafa menn áhyggjur af því að íhaldssamir menn innan íþróttarinnar neiti Garcia um að leika í landsliðstreyjunni en svo er ekki ef marka má framkvæmdastjóra Royal and Ancient golfklúbbsins í St. Andrews. „Það yrði skemmtilegt áhorfs, yrði það ekki, í ljósi glæsilegs sigurs liðsins. Ég hef engin andmæli við því,“ sagði framkvæmdastjórinn Peter Dawson spurður út í meintar áætlanir Garcia.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 







Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
