Umboðsmaður þýska knattspyrnumannsins Michael Ballack kennir „samkynhneigðum“ leikmönnum um það að þýska landsliðinu hafi mistekist að landa heimsmeistartitlinum í Suður-Afríku. Umboðsmaðurinn heitir Michael Becker og hafa ummæli hans olli mikilli reiði í Þýskalandi. Becker lét þessi ummæli falla í viðtali við þýska dagblaðið Der Spiegel. Becker sagði fágaðri leik þýska liðsins vera því að kenna að þeir væru kvenlegri eða allt að því samkynhneigðir.
Þýska liðið þótti vera það skemmtilegasta í keppni og er yngsta þýska liðið frá árinu 1976 og hefur aldrei státað af fleirri leikmönnum sem eiga rætur sínar að rekja til annarra landa en Þýskalands. Hann vill meina það að hefðbundnari og árásargjarnari þýsk knattspyrna hefði geta tryggt liðinu sigur.
Becker sagði leikmenn þýska landsliðsins vera afbrýðisama út í Michael Ballack, sem var myndaður fyrir sérstakt HM-blað fyrir bandaríska tímaritið Vanity Fair, því þeir væru meiri meðalmenn, ljótari, óhæfileikaríkir og sveitalegir. Þjálfari þýska landsliðsins Joachim Löw hefur neitað að tjá sig um þessi ummæli Becker og segist neita að leggjast jafn lágt og Becker.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013