Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri enska liðsins Arsenal, hrósaði danska sóknarmanni liðsins Nicklas Bendtner eftir fimm marka sigur liðsins á Porto í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Bendtner skoraði þrennu í 5-0 sigri Arsenal
Arsenal tapaði fyrri leik liðana 2-1 en sýndu það og sönnuðu að þeir væru mun sterkari en Porto í kvöld. Bendtner hefur átt í vandræðum með að skora fyrir Arsenal upp á síðkastið en Wenger hrósaði honum fyrir að missa aldrei trúna á sjálfum sér.
,,Nicklas hefur ekki misst sjálfstraustið, það hefur haldist nokkuð stöðugt hjá honum. Hann náði sér á strik í leiknum með góðri einbeitingu og trú, sem eru styrkleikara hans," sagði Wenger um Bendtner eftir leikinn.





Terry sviptur fyrirliðabandinu
Þessi handjárnaði sig við stöngina
Blóðbað á knattspyrnuvelli: 74 létust í átökum
Íslenskur fótboltamaður: „Ég átti við verulegt vandamál að stríða“
Mágur Speeds: „Var ekki hommi“