ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Mörkin í leik Barca og Stuttgart: Messi frábær

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:51 › 18. mars 2010
Messi, ótrúlegur.

Messi, ótrúlegur.

Lionel Messi var frábær í liði Barcelona sem valtaði fyrir þýska liðið Stuttgart í seinni leik liðanna í 16. liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi. Messi skoraði tvö mörk í 4-0 sigri Evrópumeistaranna og var allt í öllu inni á vellinum.

Messi skoraði fyrsta mark leiksins með frábæru skoti fyrir utan teig strax á 13. mínútu. Pedro Rodriguez skoraði svo laglegt mark eftir fyrirgjöf Yaya Toure sem hafði fengið frábæra sendingu inn fyrir vörn Stuttgart frá Messi.

Messi skoraði svo þriðja mark Barca áður en Bojan Krkic renndi boltanum fram hjá Jens Lehmann undir lok leiksins.

Mörkin í leiknum má sjá hér að neðan




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.