ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

GOAL kemur út í dag

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:18 › 18. mars 2010

GOAL, nýtt tímarit um fótbolta, kemur út í dag en það er Birtingur sem gefur út fjölda tímarita sem stendur að útgáfunni. GOAL fjallar um allt sem tengist fótboltanum, hvort sem það er enski, spænski, ítalski eða íslenski boltinn.

Blaðið er stútfullt af skemmtilegu efni og fastir þættir eru meðal annars viðtöl við erlendar og heimsfrægar fótboltastjörnur sem og íslenskar, plaköt, Topp 15 listinn, Enska deildin, Goðsögnin, Njósnarinn, Heimsboltinn, Boltabrot og svo margt fleira.

Íslenski boltinn fær sinn sess í blaðinu og í fyrsta tölublaði er viðtal við vonarstjörnuna Ingólf Sigurðsson, sautján ára gamlan leikmann KR, sem æfði með stórliði Arsenal á dögunum.

Meðal efnis í fyrsta tölublaðinu:
- Lionel Messi
- Boltabrot
- Topp 15 „target“ framherjarnir
- Leiðin á HM
- Karim Benzema
- Fantasy football
- Goðsögnin David Ginola
- Viðtal við Ingólf Sig. vonarstjörnu Íslands
- Félagaskiptin í janúar
- Ítalski boltinn
- Enska deildin
- Palermo
- Mark og met mánaðarins
- Njósnarinn skoðar Iker Muniaín
- Heimsboltinn



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.