Það hefur lengi verið vitað mál að gamla góða peningatréð gefur vel af sér í ensku úrvalsdeildinni. Sumir vilja jafnvel ganga svo langt að segja að leikmenn úrvalsdeildarinnar taki ofurlaunum sínum sem sjálfsögðum hlut. Í bandarísku MLS-deildinni er hlutunum háttað öðruvísi. Þar eru leikmenn nánast undir fátæktarmörkum.
Á meðan fótboltaáhugamönnum í kreppuhrjáðum löndum berast fréttir af því að leikmenn á borð við Joe Cole og Shaun Wright-Phillips séu hundfúlir með að þéna „aðeins“ 80 þúsund pund á viku í samningaviðræðum við lið sín fyrir að spila smá fótbolta við og við, þá íhugar leikmannasamband MLS-deildarinnar að fara í verkfall vegna lágra launa.
Fram hefur komið að 26 MLS-leikmenn þéni aðeins rúmlega 13 þúsund pund á ári (um 2,3 milljónir íslenskar).Í ljósi þess að meðaltal árslauna Bandaríkjamann eru um 33 þúsund pund þá má sjá að atvinnumennirnir eru vel undir sultarmörkum miðað við meðaltalið.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana