ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Turnbull í marki Chelsea á morgun - Hilario kominn á sjúkralistann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:44 › 12. mars 2010
Petr Cech er meiddur en jafnvel er búist við því að hann verði orðinn leikfær um næstu helgi.

Petr Cech er meiddur en jafnvel er búist við því að hann verði orðinn leikfær um næstu helgi.

Portúgalski markvörðuinn Hilario hjá Chelsea er kominn á sjúkralistann eftir að hafa tognað á innanlærisvöðva í sigurleiknum gegn Stoke um síðustu helgi. Það mun því væntanlega koma í hlut nýliðans Ross Turnbull að standa á milli stanganna í leiknum mikilvæga gegn Inter á þriðjudagskvöldið.

Petr Cech er enn að jafna sig eftir að hafa meiðst á kálfa í fyrri leik Chelsea og Inter í Meistaradeild Evrópu. Síðan þá hefur Hilario staðið á milli stanganna en hann átti afleitan leik þegar Chelsea tapaði á heimavelli fyrir Manchester City.

Chelsea leikur á morgun gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni og er talið að Turnbull, sem kom óvænt til Chelsea-liðsins í sumar, verði í markinu og Rhys Taylor verði á varamannabekknum.

Góðu fréttirnar fyrir stuðningsmenn Chelsea eru þó þær að Petr Cech er á batavegi og er jafnvel búist við því að hann verði orðinn leikfær um næstu helgi. Michael Essien, Ashley Cole og Jose Bosingwa eru þó allir meiddir auk Ricardo Carvalho sem leikur ekki gegn West Ham á morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.