ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Ofmetnir leikmenn!

14:12 › 12. mars 2010
Zlatan stígur niður í stóru leikjunum.

Zlatan stígur niður í stóru leikjunum.

  • Wright-Phillips skorar með Englandi, stundum.

    Wright-Phillips skorar með Englandi, stundum.

  • Flamini, góður eitt tímabil.

    Flamini, góður eitt tímabil.

Fara í myndagallerý →

Til eru frábærir leikmenn í fótbolta, en það eru líka til ömurlegir leikmenn. Sumir eru taldir góðir, jafnvel frábærir. Það getur verið fyrir eitt tímabil sem þeir stóðu sig vel með einhverju liði einhvers staðar. Það þýðir ekki að þeir séu góðir í dag. Sumir leikmenn standa því miður ekki undir umsögnum og athyglinni sem þeir fá.

Zlatan Ibrahimovic - Barcelona
Hann er kannski ekki ofmetinn í þeim skilningi að hann er frábær í fótbolta en í stórleikjum þegar hann á að skila einhverju floppar hann alltaf. Tölfræðin í stóru leikjunum talar sínu máli.

Rio Ferdinand - Manchester United
Treystir um of á félaga sína. Fær yfirleitt gagnrýni á sig þegar hann er án Nemanjas Vidic eða Johns Terry í landsliðinu og þarf að vinna vinnuna einn.

Mattheu Flamini - AC Milan
Hann átti eitt gott tímabil með Arsenal. Það síðasta. Þangað til var hann farþegi. Komst á samning hjá AC Milan þar sem hann hefur verið enn meiri farþegi.

Miguel Veloso - Sporting Lissabon
Frábær í Football Manager og eru fjölmiðlar að litast af því. Sagður frábær, nánast stórkostlegur og alltaf orðaður við stóru liðin - samt 24 ára er hann enn bara hjá Sporting.

Sergio Busquets - Barcelona
Virðist komast langt á því að pabbi hans var einhver goðsögn hjá Barcelona og í spænska landsliðinu. Klárlega veikasti hlekkur Barcelona og var oft valinn fram yfir Eið Smára.

Shaun Wright Phillips - Manchester City
Er að berjast fyrir því að fá 100 þúsund pund á viku og hann hefur ekkert sýnt í nokkur ár. Reyndar skorar hann reglulega með enska landsliðinu en hann er ekki þess virði.

Gael Clichy - Arsenal
Gríðarlega fljótur en er með slakar fyrirgjafir, er lengi að snúa úr sókn í vörn og er ekki nógu sterkur varnarlega. Hefur staðnað í sínum þroska.

Javier Mascherano - Liverpool
Merkilegt nokk er hann yfirleitt rót vandans í mörkum sem Liverpool fær á sig. Eltir illa mennina sína inn í teig en hleypur mikið. Kúdos fyrir það.

John Obi Mikel - Chelsea
Enginn sérstakur tæklari, gefur alltaf til baka og virðist ekki passa inn í glamúrlið Chelsea.

Robinho - Manchester City
Að borga 32 milljónir punda fyrir hann er náttúrlega bara geðveiki. Ekki fljótur, ekki með góðar fyrirgjafir en getur tekið sjö skæri á sex sekúndum.

Lucas - Liverpool
Það hlýtur að vera að Liverpool hafi keypt vitlausan Brassa. Einhvers staðar er annar miðjumaður að brillera sem heitir Lucas. Hefur pottþétt ekki fengið að vera með þegar allir voru að leika sér í strandboltanum.

Lassana Diarra - Real Madrid
Hann hefur besta umboðsmann í heimi sem hefur komið honum til Chelsea, Arsenal og Real Madrid. Virðist ekki hafa neitt - hvað þá að vera númer 10 í Real Madrid.

Nani - Manchester United
Ekki alveg nógu góður. Með slakar fyrirgjafir, ekki góður að taka menn á og hefur ekki enn lært á hraðann í Englandi. Er kannski óheppinn að vera Portúgali og eiga að taka við af Ronaldo. Spilar samt í gulum skóm.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.