Spænskir blaðamenn eru allt annað en sáttir við frammistöðu Real Madrid í Meistaradeildinni eins og sést kannski best á forsíðum spænskra dagblaða í dag. Þar eru orð eins “martröð”, “stórslys” og “hamfarir” áberandi.
Eitt útbreiddasta dagblað Spánar, Marca, fullyrðir að þess verði skammt að bíða áður en Manuel Pellegrini verði gefinn reisupassinn. Þar stendur á meðal annars á forsíðu: „Bless Pellegrini“. Í frétt blaðsins um leik Real Madrid og Lyon, sem endaði 1:1, kemur meðal annars fram að sagan endalausa endurtaki sig í sífellu.
„Sama uppnámið ár eftir ár. Real Madrid brotlendir í sextán liða úrslitum. Lyon slæst þar með í hóp með Madridar-böðlunum Juventus, Arsenal, Bayern Munchen, Roma og Liverpool.“ Þessi sex félög hafa öll slegið Real Madrid úr keppni í sextán liða úrslitunum undanfarin ár.
Aðrir fjölmiðlar taka í sama streng. Á forsíðu AS er fyrirsögnin “stórslys” og því lýst hvernig Lyon hafi átt skilið að fara áfram úr einvíginu. El Mundo Deportivo, sem hefur aðsetur í Barcelona, snéri hnífnum í sári Real Madrid-manna með því að segja að Barcelona gæti hæglega lyft Evrópumeistaratiltinum á heimavelli Real Madrid í maí.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana