ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Sigurður og Sara dansarar ársins

Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
13:06 › 28. desember 2010
Sigurður og Sara eru dansarar ársins 2010.

Sigurður og Sara eru dansarar ársins 2010. Mynd Harpa Steingrímsdóttir

Stjórn Dansíþróttasambands Íslands hefur útnefnt Sigurð Má Atlason og Söru Rós Jakobsdóttur sem dansara ársins 2010. Þetta er í þriðja sinn sem þau hreppa þessa útnefningu. Þau dansa fyrir Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar og hafa gert þá frá árinu 2000. Í gegnum árin hafa þau bæði unnið Íslands- og Bikarmeistaratitla í flokkum unglinga, ungmenna og fullorðinna. Þau hafa einnig verið fulltrúar Íslands á heims- og evrópumeistaramótum og keppt á fjölda alþjóðlegra stórmóta.

Á árinu 2010 náðu þau alltaf í verðlaunasæti á íslenskum keppnum og urðu þau Íslandsmeistarar í standard dönsum ungmenna og í öðru sæti í flokki fullorðinna, í öðru sæti í latin dönsum í flokki ungmenna og í öðru sæti í flokki fullorðinna. Þau urðu einnig Íslandsmeistarar í flokki ungmenna og flokki fullorðinna í 10 dönsum. Sigurður og Sara keppa í efsta styrkleikaflokki. Þeirra besti árangur erlendis á árinu var 12. sæti á heimsmeistaramóti ungmenna í latin dönsum sem fram fór í Linz í Austurríki þann 24. apríl síðastliðinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?