Birgir Leifur Hafþórsson mun leika á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Mynd: Róbert Reynisson
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hefur leik næsta laugardag á lokastigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi, þá næststærstu í heiminum. Birgir Leifur lauk í gær leik á öðru stigi úrtökumótsins en hann náði þar þeim glæsilega árangri að verða í öðru sæti á móti sem fram fór á Arcos Garden-vellinum við suðurströnd Spánar. Birgir Leifur lék hringina fjóra samtals á sex höggum undir pari en lokahringinn lék hann á fjórum undir. Veður setti strik í reikninginn en ekki náðist að ljúka mótinu fyrr en í gær en Birgir Leifur átti þá eftir tíu holur. Þar small allt saman og landaði hann öðru sætinu sem tryggir honum keppnisrétt á lokaúrtökumótinu og 150.000 krónum í verðlaunafé.
Spilaði vel allt mótið
Birgir Leifur var nýbúinn að frétta að hann hefði náð öðru sætinu þegar DV náði á hann en hann sat þá á flugvelli og beið eftir flugi til Barcelona þar sem lokaúrtökumótið fer fram. „Ég er alveg í skýjunum. Það var virkilega gaman að komast í gegnum þetta og klára mótið með stæl,“ segir Birgir Leifur. „Ég spilaði vel allt mótið og nokkuð stöðugt. Ég get ekki annað en verið rosalega sáttur,“ segir hann



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
