Ryder-bikarinn í golfi kláraðist í dag og hafði Evrópa þar sigur með minnsta mun, með fjórtán og hálfum vinningi gegn þrettán og hálfum. Úrslitin réðust ekki fyrr en í lokaleik keppninnar þar sem Norður-Írinn Greame McDowell stóðst áhlaup Bandaríkjamannsins Hunter Mahan og tryggði Evrópu sigur.
Fyrir daginn í dag hafði Evrópa gott forskot en Bandaríkjunum gekk vel í tvímenningnum. Tólf þannig voru leiknir í dag. Þegar einn leikur var eftir, viðureign McDowell og Mahan, var staðan jöfn, bæði lið með þrettán og hálfan vinning. Hefði Bandaríkjunum dugað jafntefli í síðustu viðureigninni til að halda bikarnum.
Greame McDowell sýndi þó stáltaugar og stóðst áhlaup Hunter Mahan sem gafst upp eftir að par pútt hans á sautjándu flötinni sneiddi framhjá holunni. Braust þá út gríðarlegur fögnuður á Celtic Manor-vellinum í Wales þar sem keppnin fór fram.
Fyrirliði Evrópu, Colin Montgomerie, var að bilast af stressi á lokaholunni og gat hann ekki horft á vipp McDowell inn á flötina. Hann var þó fljótur að hlaupa að Norður-Íranum og faðma hann rækilega þegar sigurinn var tryggður enda McDowell hetja Evrópu þetta árið.
Evrópa endurheimti því Ryder-bikarinn sem Bandaríkjamenn unnu í Kentucky fyrir tveimur árum en Evrópa hefur nú unnið sex af síðustu átta Ryder-bikurum. Næsta keppni árið 2012 fer fram í Bandaríkjunum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
