ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

John Daly hættur í golfi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:16 › 30. janúar 2010

Golfíþróttin varð af einum litríkasta og skemmtilegasta kylfingi sínum í gær er Bandaríkjamaðurinn John Daly tilkynnti að hann væri hættur að keppa í golfi. Daly gaf þetta út eftir að hann náði ekki í gegnum niðurskurð á Torrey Pines-vellinum í gær. „Ég er búinn. Ég get ekki keppt. Ég get ekki leikið eins og ég gerði áður fyrr. Ég er þreyttur á að verða mér til skammar fyrir framan adáendur mína,“ sagði Daly eftir mótið.

Hann er aðeins fjörutíu og þriggja ára gamall. Hann hefur unnið tvö risamót á ferli sínum og nítján mót á bandarísku mótaröðinni. Daly hefur ávallt notið mikillar hylli golfáhugamanna fyrir litríka framkomu. Hann hefur þó glímt við drykkjuvandamál í gegnum árin og verið fremur óstýrlátur. Engu að síður kveðja áhangendur íþróttarinnar Daly með miklum söknuði.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?