ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Tiger Woods íþróttamaður áratugarins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:42 › 16. desember 2009
Tiger Woods er einn sigursælasti kylfingur sögunnar.

Tiger Woods er einn sigursælasti kylfingur sögunnar.

Tiger Woods hefur ekki getað glaðst yfir miklu undanfarna daga. Hann getur þó huggað sig með því að afrek hans á golfvellinum eru ekki gleymd. Associated Press-fréttastofan útnefndi hann nefnilega íþróttamann áratugarins í dag.

Woods fékk 56 af 142 atkvæðum ritstjóra AP.

Woods státar af merkilegum áratug enda vann hann á þeim tíma 64 mót, þar af 12 risamót í golfi. Hann tapaði aðeins einu sinni eftir að hafa farið inn í lokaumferð móts með forystuna. Og aðeins fjórir kylfingar hafa unnið fleiri PGA sigra á ferlinum en Woods vann á þessum áratug.

Hjólreiðakappinn Lance Armstrong varð í öðru sæti kjörsins með 33 atkvæði, tennisleikarinn Roger Federer endaði í þriðja og sundkappinn Michael Phelps því fjórða.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?