ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Bolt tekur að sér hraðasta dýr veraldar-Myndband

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:40 › 2. nóvember 2009

Fljótasti maður í heimi Usain Bolt hefur eignast hraðast dýr veraldar. Hann tók að sér þriggja mánaða gamlan hlébarðaunga nú nýverið og hefur gefið honum nafnið „Lightning Bolt“. Bolt vill með athæfinu vekja athygli íbúa í Kenýa um að vernda hlébarðastofninn í landinu sem er á miklu undanhaldi vegna ofveiði og loftlagsbreytinga.

Bolt greiddi 1,7 milljón króna fyrir ungann en hann þarf einnig að reiða fram 375 þúsund krónur á ári í uppihald ungans, sem verður alinn upp í dýraathvarfi í Nairobi.

Bolt var spurður hvort hann hræddist hlébarða og svaraði hann því játandi en afstaða sín til þeirra hefði breyst eftir að hann kynntist unganum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?