Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan hefur skapað fár í kringum Forsetabikarinn eftir að Jordan var staðinn að því að reykja vindla er hann lék æfingarhring á Harding golfvellinum í San Francisco þar sem keppnin fer fram um helgina. Reykingar eru bannaðar samkvæmt lögum á opinberum stöðum og er sektin við því 13.000 krónur. Jordan gegnir stöðu aðstoðarfyrirliða bandaríska úrvalsins sem leikur gegn alheimsúrvalinu í keppninni.
Fred Couples, fyrirliði bandaríks úrvalsins, segir nokkra háttsetta einstaklinga hafa beðið Jordan um að virða lögin og reykja ekki, sem hann gerði. Nokkrir hafa sagt Jordan ekki hafa reykt vindlana heldur tuggið þá til að róa taugarnar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
