Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan reykti þrjá vindla er hann lék æfingahring með bandaríska liðinu fyrir Forsetabikarinn. Fyrirliði liðsins Fred Couples var með Jordan í holli ásamt Lucas Glover, Hunther Mahan og Sean O´Hair. Fred Couples segist hafa týnt tölunni á hversu marga vindla Jordan reykti á æfingarhringnum.
„Jordans sagði að eftir því sem hann yrðir taugaóstyrkari þá byrjaði hann að tyggja vindlana og þá var hann fyrr búinn með þá,“ sagði Couples.
Lucas Glover sagði Jordan eflaust ekki geta kennt þeim margt um golf en Jordan hefði hinsvegar verið undir mikilli pressu á atvinnumannaferli sínum í körfubolta og vissi hvernig ætti að klára leiki.
Fred Couples sagði nærvera Jordans sem aðstoðarfyrirliða bandaríska liðsins væri sterk. „Jordan sagði bandaríska liðið varla eiga eftir að taka hann alvarlega ef hann yrði varafyrirliði liðsins, þá sérstaklega Phil Mickelson og Tiger Woods. Jordan spurði mig hvað hann ætti að gera sem fyrirliði og ég sagði að liðið myndi allt hlusta á ráðleggingar hans því að þeir bæru gífurlega virðingu fyrir honum,“ segir Couples.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
