ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Hjörtur Már tvíbætti Íslandsmetið

09:50 › 19. október 2009
Hjörtur Már, magnaður.

Hjörtur Már, magnaður. Mynd Sölvi Logason

Fjórtán ára gamli sundkappinn Hjörtur Már Ingvarsson fór á kostum á fyrsta degi Evrópumóts fatlaðra í sundi sem sett var í Laugardalslaug í gær. Hjörtur varð áttundi í 50 metra skriðsundi karla í flokki S5 og tvíbætti Íslandsmet sitt.

Hjörtur setti Íslandsmetið í Ásvallalaug í mars á þessu ári og stóð það í 54,23 sekúndum. Í undanrásum í gær synti hann á 50,36 sekúndum og bætti þar með metið um tæpar fjórar sekúndur. Í úrslitasundinu synti hann svo á 50,09 sekúndum, bætti metið aftur og varð áttundi.

Sunddrottningin Sonja Sigurðardóttir hafnaði í gær í áttunda sæti í 50 metra skriðsundi kvenna. Hún var síðust inn í úrslit eftir undanrásir á tímanum á 57,22 sekúndum en hún synti svo á tímanum 58,62 sekúndum í úrslitum.

Alls voru það sex heimsmet og átta Evrópumet sem féllu á fyrsta keppnisdegi í dag og ljóst að allir helstu og bestu sundmenn álfunnar úr röðum fatlaðra eru komnir í Laugardalinn til þess að láta vel að sér kveða.

Úrslit og ráslista má finna á heimasíðu mótsins, www.ifsport.is/ec2009



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.