ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.1° 9m/s S

Pistorius vann gull í 100 metra hlaupi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:21 › 9. september 2008
Oscar Pistorius með gullverðlaunin í morgun

Oscar Pistorius með gullverðlaunin í morgun Mynd: Getty

Oscar Pistorius, fatlaður spretthlaupari frá Suður-Afríku sem hleypur á gervilimum frá íslenska fyrirtækinu Össur HF, vann hundrað metra hlaup í flokki T44 á Ólympíumótinu í Peking í dag.

Pistorius reyndi hvað hann gat að fá keppnisleyfi í 400 metra hlaupi á Ólympíuleikum ófatlaðra sem haldnir voru í ágúst en fékk ekki leyfi frá alþjóða Ólympíunefndinni.

Hann hljóp í dag á 11,17 sekúndum og varð þremur hundruðustu á undan Jerome Singelton frá Bandaríkjunum.

Pistorius á enn eftir að keppa í 200 og 400 metra hlaupi.

Keppt er í nokkrum flokkum í hundrað metra hlaupi og á okkar maður, Jón Oddur Halldórsson, enn eftir að keppa í sínum flokki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?