Ensku liðin Manchester United og Arsenal unnu bæði auðvelda sigra á mótherjum sínum í meistaradeildinni í kvöld. Evrópumeistarar Manchester United unnu danska liðið AAB í Álaborg, 3-0, þar sem Dimitar Berbatov komst á blað en hann skoraði tvö mörk. Arsenal burstaði Porto, 4-0, á heimavelli.
Manchester United missti Paul Scholes og Wayne Rooney af velli meidda. Scholes fékk mikið högg á hnéð og var borinn af velli en Rooney tölti sjálfur inn í klefa.
Á Emirates-leikvanginum sáu Robin van Persie og Emmanuel Adebayor um Porto með sitthvorri tvennunni fyrir Arsenal. Bæði Arsenal og United gerðu jafntefli í fyrstu leikjum sínum en eru nú komin á toppinn í sínum riðlum.
Óvæntustu úrslit kvöldsins mátti finna í Hvíta-Rússlandi. Þar náðu Valsbanarnir í BATE Borisov jafntefli gegn Juventus, 2-2, en BATE komst 2-0 yfir.
Úrslit kvöldins:
E riðill
Álaborg - Man. United 0–3
0-1 Wayne Rooney (22.),
0-2 Dimitar Berbatov (55.),
0-3 Dimitar Berbatov (79.).
Villareal - Celtic 1–0
1-0 Marcos Senna (67.).
F riðill
Bayern Munchen - Lyon 1–1
0-1 Martin Demichelis (25, sjálfsmark.),
1-1 Ze Roberto (52.).
Fiorentina - Steaua Búkarest 0–0
G riðill
Arsenal - Porto 4–0
1-0 Robin Van Persie (31.),
2-0 Emmanuel Adebayor (40.),
3-0 Robin Van Persie (48.),
4-0 Emmanuel Adebayor (71, víti.).
Fenerbache - Dynamo Kiev 0–0
H riðill
Zenit St. Pétursborg - Real Madrid 1–2
0-1 Tomas Hubocan (4, sjálfsmark.),
1-1 Danny (25.),
1-2 Ruud Van Nistelrooy (31.).
BATE Borisov - Juventus 2–2
1-0 Sergey Krivets (17.),
2-0 Igor Stasevich (23.),
2-1 Vincenzo Iaquinta (29.),
2-2 Vincenzo Iaquinta (45.).





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 






Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana