ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Flamini vill spila meira hjá Milan

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:50 › 30. september 2008
Flamini byrjaði síðast inn á gegn Lazio.

Flamini byrjaði síðast inn á gegn Lazio. Getty

Fransmaðurinn Mathieu Flamini sem gekk til liðs við AC Milan í sumar er ekki ánægður með hversu lítið hann fær að spila hjá liðinu. Kaupin á honum töldu margir sérfræðingar á Ítalíu vera þau bestu í ár og byrjaði hann inn á í fyrsta leik. Eftir að hann var tekinn úr liðinu fyrir nokkru hefur Milan nú unnið fjóra leiki í röð í öllum keppnum.

Flamini var í byrjunarliðinu í fyrsta leik ársins og þeim næstu tveimur. Liðið byrjaði illa og í þriðja leik þegar Milan tapaði 4-1 fyrir Lazio var Flamini hent á bekkinn. Eftir það snérist gæfa Milan sem hefur nú unnið fjóra leiki í röð í deild, bikar og Evrópukeppni félagsliða.

,,Ég hefði nú vonast eftir fleiri mínútum," segir Flamini. ,,En aftur á móti er það þjálfarans að ákveða hver spilar og ég verð að virða það. Sigur hjá liðinu er auðvitað mikilvægastur, fá þrjú stig og halda áfram á þeirri jákvæðu braut sem við erum á," segir Flamini.

Einn af þessum fjórum sigrum var sigur á Inter í borgarslagnum um síðustu helgi. Flamini kom þar inn á undir lok leiksins þegar Milan var að reyna að halda 1-0 forystunni sem það og gerði og vann leikinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.