ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Ferguson: „Spila mínu sterkasta liði“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:16 › 30. september 2008
Ferguson ætlar að sækja þrjú stig til Álaborgar í kvöld.

Ferguson ætlar að sækja þrjú stig til Álaborgar í kvöld. Mynd: Getty

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, ætlar ekki að taka neina áhættu þegar hans menn mæta dönsku meisturunum í AaB Álaborg í kvöld. Ferguson á ekki góðar minningar frá heimsóknum sínum til Danmerkur því United liðið tapaði árið 2006 fyrir FC Kaupmannahöfn.

Ferguson sagði á blaðamannafundi fyrir leikinn í gær að sínir menn vanmeti dönsku meistarana ekki. Þá sagðist hann ætla að spila öllum sínum bestu mönnum. „Ég er ekki hræddur um vanmat hjá mínum mönnum. Við gerðum mistök gegn FC Kaupmannahöfn og enduðum á að rétt komast áfram. Í þetta skiptið mun ég spila mínum bestu mönnum,“ segir Ferguson.

Það þýðir að Cristiano Ronaldo, Dimitar Berbatov, Wayne Rooney og Paul Scholes spila væntanlega í kvöld. Eftir jafnteflið í fyrsta leik gegn Villarreal veit Ferguson að United liðið hefur ekki efni á að misstíga sig í kvöld.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.