Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Knattspyrnudómarinn Rob Styles sem dæmdi leik Manchester United og Bolton í ensku úrvalsdeildinni um helgina hefur beðið Bolton afsökunar á vítaspyrnunni sem hann dæmdi gegn þeim þegar Jlloyd Samuel "braut" á Cristiano Ronaldo innan vítateigs.
Augljóst var að ekki var um víti að ræða og sá Styles það eins og allir aðrir á myndbandi eftir leikinn sem Manchester United vann 2-0. Athygli vakti einnig hversu langan tíma Styles tók í að benda á punktinn eftir að hann flautaði.
Gary Megson, þjálfari Bolton, sagði eftir leikinn: „Þetta var bull og kjaftæði. Ég hélt að hann ætlaði að spjalda Ronaldo fyrir leikaraskap sem hefði einnig verið rangur dómur.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana