Fyrirliði Bolton, Kevin Nolan, viðurkenndi í dag að leikmenn Manchester United á vellinum í leik liðanna á laugardaginn hafi verið gáttaðir á því að Rob Styles hafi veitt þeim vítaspyrnu.
Í stöðunni 0-0 dæmdi Styles vítaspyrnu eftir að Jlloyd Samuel hafði tæklað Cristiano Ronaldo, að því er öllum virtist, fullkomlega löglega.
„Ronaldo lá í teignum og sagði, „Ég vildi ekki víti!,““ segir Nolan í Daily Mail í dag.
„Ég held að ekki einn leikmaður þeirra hafi lyft upp hendinni til að biðja um víti. Fletcher, Tevez og fleiri sögðu allir að þetta hafi ekki verið víti. Tuttugu leikmenn voru í teignum þegar atvikið átti sér stað og eini maðurinn sem sá brot var dómarinn.“ segir Nolan.
Nolan sagði að leikmenn United hafi ekki trúað sinni eigin heppni en vildi annars lítið tjá sig frekar svo hann lendi ekki í vandræðum hjá enska knattspyrnusambandinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana