Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Everton hafa ákveðið að áfrýja rauða spjaldinu sem Tim Cahill fékk á laugardaginn í leiknum gegn Liverpool.
Dómari leiksins, Mike Riley gaf ástralska landsliðsmanninum beint rautt spjald eftir að hafa tæklað miðjumann Liverpool, Xabi Alonso á 80 mín. Brotið leit illa út við fyrstu sýn og virtist dómarinn í engum vafa. Everton telja aftur á móti að við nánari skoðun hafi brotið ekki verðskuldað rautt spjald. Þeir hafi því ákveðið að áfrýja dómnum.
Tom Cahill fær þriggja leikja bann ef dómurinn stendur.
Leita þarf nokkur ár aftur í tímann til að finna leik liðanna úr Bítlaborginni þar sem rautt spjald hefur ekki farið á loft.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana