ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Ronaldinho tilbúinn í slaginn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:21 › 28. september 2008
Mynd: Getty

Ronaldinho er tilbúinn í slaginn fyrir leik A.C Milan og Inter sem fram fer á San Siro í kvöld. Inter er á toppi deildarinnar sem stendur en tapi A.C Milan í kvöld nær Inter sjö stiga forystu. Inter er með tíu stig en A.C. Milan með sex.

„Á Spáni er spiluð allt önnur knattspyrna en ég held að ég verði fljótur að aðlagast ítölsku knattspyrnunni. Stuðningsmennirnir hafa sýnt mér stuðning og ég get ekki beðið eftir að skora fyrsta markið. Þegar það kemur verður það tileinkað öllum þeim sem sýnt hafa mér stuðning. Ég er tilbúinn í slaginn og fæ vonandi að spila,“ segir Ronaldino.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.