José Mourinho er ekki búinn að vera lengi í starfi sem knattspyrnustjóri Inter. Þrátt fyrir það hefur honum tekist að styggja marga með hegðun sinni utan vallar sem innan.
Nýjasti “óvinur“ Mourinho er enginn annar en Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri Juventus, sem segir að Mourinho skorti alla virðingu í garð fólks í kringum hann. Þetta segir hann eftir að Mourinho neitaði að mæta á blaðamannafund, fyrir og eftir leik Inter við Lecce um síðustu helgi.
„Þetta er hluti af okkar starfi og með því að mæta á svona fundi erum við að uppfylla forvitni stuðningsmanna okkar. Það er erfitt að veita viðtöl í klukkustund eftir leiki en það er starfið okkar. Þannig sýnum við fólki virðingu,“ segir hann. Af þessu tilefni sagði knattspyrnustjóri Lecce, Mario Beretta, að Mourinho þyrfti að sína meiri virðingu og tók Ranieri undir þau orð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana