Brasilíski snillingurinn Robinho hjá Manchester City er búinn að sparka umboðsmanni sínum, Wágner Ribeiro. Leiðir þeirra Robinho og Ribeiro lágu saman fyrir sex árum og á hann einna stærstan þátt í því að Robinho er nú einn launahæsti knattspyrnumaður heims.
„Ég er þakklátur fyrir allt sem Wágner Ribeiro hefur gert fyrir feril minn. Nú er samstarfið hinsvegar á enda og kominn tími til að við förum í sitt hvora áttina og ég á mér ný markmið með Manchester City,“ sagði Robinho í tilkynningu sem hann sendi frá sér.
Samstarf Ribeiro og Robinho hófst árið 2002 þegar Robinho var enn táningur hjá uppeldisliði sínu Santos í Brasilíu. Ribeiro náði að kreista í gegn félagaskipti hans til Real Madrid árið 2005 og svo aftur þegar hann fór til Manchester City. Faðir Robinho mun nú sjá um öll hans viðskipti.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana