Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Jóhann Berg Guðmundsson, leikmaður Breiðabliks í Landsbankadeild karla, gæti leikið sinn síðasta leik í bili fyrir Breiðablik. Jóhann hefur skotist hratt upp á stjörnuhimininn með frábærri frammistöðu með Blikum í sumar en hann er eftirsóttur af mörgum stórliðum í Evrópu.
Fram kemur á fótbolti.net að líklegasti áfangastaður Jóhanns sé þýska stórliðið Hamburg en Martin Jol, fyrrverandi knattspyrnustjóri Tottenham er við stjórnvölinn þar. Auk Hamburgar kemur enska fyrstu deildar liðið Coventry til greina en með því liði leikur einmitt Aron Einar Gunnarsson, landsliðsmaður Íslands.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana