ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Alonso fljótastur í Singapúr

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:13 › 26. september 2008
Alonso náði besta tímanum en Kubica 6. besta.

Alonso náði besta tímanum en Kubica 6. besta. Mynd: Getty

Fernando Alonso stal senunni á seinni æfingu dagsins á flóðlýstri Singapúr-brautinni í Formúlu 1 í dag. Á síðasta hring skaust hann fram úr tíma Lewis Hamiltons og náði besta tíma brautarinnar.

Hamilton var með besta tíman lengi framan af áður en Felipe Massa skaust fram úr honum. Hamilton bætti aftur tíma Massa en Alonso sem var mjög grimmur á fyrri æfingunni í dag bætti tíma þeirra beggja nánast um leið og æfingatíminn var búinn.

Annar sem kom á óvart á æfingunni var Nico Rosberg sem átti um stund besta tímann. Frakkinn Sebastian Bourdais sem hefur hvað mesta reynslu af götuakstri gekk ekkert og var orðinn ansi pirraður þegar hann kom aftur inn í skúr. Mælti hann þar svo að hann nennti þessu varla, það væri algjörlega tilgangslaust fyrir hann að keyra bílinn meðan hann væri svona hægur.

Efstu átta á seinni æfingu:

1. Fernando Alonso, Renault
2. Lewis Hamilton, McLare
3. Felipe Massa, Ferrari
4. Heikki Kovalainen, McLaren
5. Nico Rosberg, Williams
6. Robert Kubica, BMW
7. Kimi Raikkonen, Ferrari



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.