ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Alonso: Ekki besta lausnin

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:10 › 25. september 2008
Alonso

Alonso Mynd: Getty

Fernando Alonso ökumaður Renault í Formúlunni segir að ökumenn gætu þurft að hemja sig aðeins á flóðlýstri Singapúr-brautinni á sunnudaginn. Hann eins og aðrir hafa smá áhyggjur af 10. beygju sem gæti skemmt bílanna.

Við 10. beygju er upphækkun sem á að varna því að menn stytti sér leið. Hitti menn óvart á vondan stað í beygjunni gæti það hinsvegar skemmt bílanna. Sebastian Bourdais, ökumaður Torro Rosso, var fyrstur til að labba brautina og talaði um nákvæmlega sama hlutinn.

,,Þetta er nú ekki besta lausnin sem hægt var að finna," segir Alonso. ,,Ef maður hittir ekki rennslið eða aksturslínuna þá endar maður með því að fara yfir þennan kant og þá gæti bílinn skemmst."

,,Ef maður skemmir bílinn er það ekkert mikið vandamál því það er alltaf hægt að taka varabílinn. En ef maður skemmir hann líka þarf maður að fara heim. Þessi beygja er áhyggjuefni eins og staðan er núna," segir Alonso.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.