ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Scolari stefnir á alla titla

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:03 › 24. september 2008
Scolari gefur Terry og Drogba góð ráð

Scolari gefur Terry og Drogba góð ráð Getty

Það vantar ekkert upp á metnaðinn í Luiz Filipe Scolari stjóra Chelsea. Hann hafur gefið það út að hann stefni á að ná inn öllum fjórum titlunum sem í boði eru. Deildarbikarinn, Carling Cup, er yfirleitt ekki í forgangi hjá stóru liðinum á Englandi en Scolari segir Chelsea hungra í þann titil ásamt hinum þremur.

"Allir leikir eru mikilvægir fyrir Chelsea, hvort sem það eru æfingaleikir, leikir deildinni, FA-bikarkeppninni, Meistaradeildinni eða deildarbikarnum," segir Scolari.

"Ég hugsa öðruvísi en aðrir þjálfarar. Ég trúi því að leikmenn séu ekki að sinna sínu starfi þegar þeir spila fótbolta. Þeir spila af því að það er skemmtilegt, ekki fyrir peninga. Þeir elska að spila fótbolta og þegar þú elskar starfið þitt þá er hver dagur frábær."

"Allir leikmenn eru ólmir að spila alla leiki," segir Brassinn bratti sem mun líklega gera nokkrar breytingar á liði sínu fyrir leik liðsins gegn Portsmouth í umræddum deildarbikar í kvöld.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.