ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

FH ennþá í séns eftir sigur á Blikum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:10 › 24. september 2008
Atli Guðnason og Prince Rajcomar í leiknum í dag

Atli Guðnason og Prince Rajcomar í leiknum í dag Mynd: DV-Róbert

FH á ennþá möguleika á Íslandsmeistaratitlinum eftir léttan, 3-0, sigur á Blikum í Krikanum í dag. Atli Viðar Björnsson skoraði tvö mörk fyrir FH og Atli Guðnason eitt í sigri sem hefði getað orðið stærri.

FH-ingar leiddu 3-0 í leikhléi og fengu fleiri færi til þess að skora í þeim síðari. Blikar fengu líka upplagt tækifæri til að laga stöðuna þegar Jóhann Berg Guðmundsson fékk vítaspyrnu. Hann tók spyrnuna sjálfur og lét Gunnar Sigurðsson verja frá sér.

FH hefði þurft eitt mark til viðbótar til að jafna Keflavík að markatölu. FH-ingar þurfa nú að vinna Fylki í lokaumferðinni með tveimur mörkum og vonast til þess að Fram taki allavega stig af Keflavík í Keflavík.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.