Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie hefur gefið það út að hann sjálfur hefði gert ýmsa hluti öðruvísi hjá Evrópska Ryder-liðinu hefði hann verið við völdin um síðustu helgi. Hann segir enn fremur að það væri synd ef landi hans, Sandy Lyle, yrði ekki valinn sem liðstjóri Evrópu fyrir Ryder-bikarinn 2010.
Evrópa tapaði fyrir Bandaríkjunum í fyrsta skiptið síðan 1999 með 16 og 1/2 vinningi gegn 11 og 1/2.
Aðspurður hvort honum fyndist Nick Faldo sem stýrði liðinu í ár hafa fengið það besta út úr því svaraði Montgomerie: „Líklega ekki,“ en Monty eins og hann er kallaður var ekki með í fyrsta skiptið síðan 1989.
Faldo hafði þann möguleika að velja Montgomerie sem „Wild card“ leikmann á mótið en þá hefði Monty farið fram úr meti Faldos í stigasöfnun í Rydernum. Montgomerie gefur það sterklega til kynna að honum finnst stærstu mistök Faldo að senda Padgraig Harrington síðastan út á lokadeginum.
„Það rann upp fyrir mér þegar ég sá niðuröðunina að Poulter, Westwood og Harrington sem eru okkar bestu menn yrðu kannski ekki að klára sína leiki á álagstímum. Þegar þeir væru að klára væri mótið kannski búið,“ segir Montgomerie.
„Hefði þeim verið leikið fyrr hefðu þeir tekið 100% þátt í öllu. Aðeins einu sinni í sögu Ryder-bikarsins hefur keppnin ráðist í síðasta leik. Hjá Bernhard Langer 1991.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
Axel Bóasson bestur í Leirunni