ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

City ætlar sér Aguero

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:36 › 24. september 2008
Aguero er einn eftirsóttasti framherji heims um þessar mundir.

Aguero er einn eftirsóttasti framherji heims um þessar mundir. Mynd: Getty

Manchester City ætlar sér að festa kaup á argentíska ungstirninu Sergio Aguero frá Atetico Madrid. Aguero, sem er einungis tvítugur, hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Atletico og argentíska landsliðinu og ófá stórlið sem vilja fá kappann í sínar raðir.

En City með sína fjársterku eigendur eru taldir líklegasti áfangastaður Aguero, samkvæmt breskum fjölmiðlum, eins og staðan er núna. Þá þykir Inter einnig vera líklegur áfangastaður en Diego Maradona, sem er tengdafaðir Aguero, var nýlega ráðinn í starf ráðgjafa hjá félaginu.

Spænska dagblaðið Marca hefur heimildir fyrir því að enska liðið verði með útsendara á leik Atletico Madrid og Getafe sem fram fer í kvöld. Aguero er með klásúlu í samningi sínum sem gerir honum kleift að yfirgefa félagið, berist tilboð upp á sextíu milljónir evra í hann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.