ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Versta dómgæsla allra tíma stendur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:01 › 23. september 2008
Nigel Bannister aðstoðardómari (annar frá vinstri) verður tæplega heiðursborgari í Watford í bráð.

Nigel Bannister aðstoðardómari (annar frá vinstri) verður tæplega heiðursborgari í Watford í bráð. Getty

Enska knattspyrnusambandið hefur hafnað þeim möguleika að endurtaka leik Reading og Watford þar sem draugamarkið fræga hafði áhrif á úrslit leiksins. Eins og allir sáu nema aðstoðardómarinn Nigel Bannister þá fór boltinn aldrei nálægt marki Watford þegar hann dæmdi mark og fékk dómara leiksins Stuart Atwell til að staðfesta gjörninginn.

Talsmaður deildarinnar Andy Williamson staðfesti í samtali við BBC að ákvörðun um að marki stæði væri endanleg. "Reglur leiksins gera okkur ekki kleift að grípa inn í. Ákvörðun dómarans um hvort mark standi eða ekki er endanleg og bindandi."

Markið var skráð sem sjálfsmark John Eustace leikmanni Watford. Hann hélt að lið sitt væri að fá markspyrnu eftir að leikmaður Reading Noel Hunt hafði reynt að halda boltanum inn á vellinum.

Í stað þess ákvað aðstoðardómarinn að dæma mark, leikmönnum Watford til mikillar furðu og reiði.

Watford segjast una öllum úrskurðum knattspyrnusambandsins en vilja um leið vekja athygli á slæmum gæðum dómgæslunnar í ensku 1.deildinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.