Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, gerði tvær breytingar á hópnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Frakklandi næstkomandi laugardag.
Gréta Mjöll Samúelsdóttir er frá vegna slitins krossbands og í hennar stað kemur Harpa Þorsteinsdóttir úr Breiðabliki. Þá tekur María Björg Ágústsdóttir, markvörður bikarmeistara KR, sætið af Söndru Sigurðardóttur úr Stjörnunni.
Leikurinn á laugardaginn er svo sannarlega sá mikilvægasti frá upphafi. Íslandi dugir jafntefli gegn Frakklandi til þess að komast beint á stórmót, Evrópumótið sem haldið verður í Finnlandi á næsta ári. Ísland vann Frakkland í fyrri leiknum hér heima, 1-0, með marki Margrétar Láru Viðarsdóttur á 81. mínútu.
Tapi Ísland leiknum og endi í 2. sæti riðilsins er þó öll von langt frá því að vera úti. Þjóðirnar í 2. sæti og nokkrar úr 3. sæti komast í umspil og vegna stiga- og markafjölda íslenska liðsins ætti mótherjinn með öllu að vera vel viðráðanlegur. Stelpurnar þurfa samt ekkert að spá í það. Þær hafa nú þegar sýnt magnaða takta í riðlinum og hafa þess utan unnið Frakkland. Fari Ísland í umspil verða þeir leikir heima og að heiman í október.
Markverðir:
Þóra Björg Helgadóttir Anderlecht
María B. Ágústsdóttir KR
Aðrir leikmenn:
Katrín Jónsdóttir Valur
Dóra María Lárusdóttir Valur
Ásta Árnadóttir Valur
Margrét Lára Viðarsdóttir Valur
Sif Atladóttir Valur
Edda Garðarsdóttir KR
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR
Hólmfríður Magnúsdóttir KR
Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir KR
Katrín Ómarsdóttir KR
Embla Sigríður Grétarsdóttir KR
Harpa Þorsteinsdóttir Breiðablik
Sara Björk Gunnarsdóttir Breiðablik
Rakel Hönnudóttir Þór/KA
Dóra Stefánsdóttir LdB Malmö
Erla Steina Arnardóttir Kristianstad





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana