Pogatetz tæklar Possebon gróft og fékk rautt spjald fyrir vikið. Possebon er líklega fótbrotinn. Mynd: Getty
Manchester United, Liverpool og Arsenal eru öll komin áfram í deildarbikarnum á Englandi eftir leiki kvöldsins. Raunir Fulham í bikarkeppnum halda áfram en þeir féllu úr leik fyrir Jóhannesi Karli og félögum í Burnley, 1-0, í kvöld. Brassinn efnilegi hjá Manchester United, Rodrigo Possebon, er líklega fótbrotinn eftir ruddalega tæklingu Emmanuel Pogatetz.
Cristiano Ronaldo skoraði fyrir Manchester United í kvöld en hann lék klukkutíma með liðinu. Þá gerði Mexíkókinn Carlos Vela þrennu fyrir Arsenal sem rótburstaði Sheffield United, 6-0.
Úrslit kvöldsins.
Arsenal - Sheffield United 6–0
1-0 Nicklas Bendtner (31.), 2-0 Nicklas Bendtner (42.), 3-0 Carlos Vela (44.), 4-0 Carlos Vela (50.), 5-0 Jack Wilshere (57.), 6-0 Carlos Vela (87.).
Man. United - Middlesbrough 3–1
1-0 Cristiano Ronaldo (25.), 2-0 Ryan Giggs (79), 3-0 Nani (90.+3).
Liverpool - Crewe 2–1
1-0 Daniel Agger (15.), 1-1 Michael O’Connor (25.), 2-1 Lucas Leiva (58.).
Stoke - Reading 2–2 (Framlenging)
Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í byrjunarliði Reading.
Watford - West Ham 1–0
1-0 Hayden Mullins (70, sjálfsmark.).
Burnley - Fulham 1–0
1-0 Jay Rodriguez (88.).
Jóhannes Karl Guðjónsson var í byrjunarliði Burnley.
Sunderland - Northampton 2–2 (Framlenging)
0-1 Colin Larkin (20.), 0-2 Luke Guttridge (81.), 1-2 Anthony Stokes (88.), 2-2 Anthony Stokes (90.).
Leeds - Hartlepool 3–2
Rotherham - Southampton 3–1
Swansea - Cardiff 1–0





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Bayern landaði hinum stórefnilega Shaqiri
Rooney vill að Redknapp verði ráðinn
„Stígðu fram Harry Redknapp og uppfylltu örlög þín“
Fabio Capello segir af sér
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana