ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Riera: Torres og Keane munu skora

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:01 › 23. september 2008
Torres mundar hægri fótinn umkringdur varnarmönnum Stoke City

Torres mundar hægri fótinn umkringdur varnarmönnum Stoke City Getty

Hinn spánýi leikmaður Liverpool, spánverjinn Albert Riera lætur hafa eftir sér í dag að þrátt fyrir markaþurð framherjaparsins Torres og Keane í upphafi tímabils beri ekki að örvænta. Mörkin muni koma.

Riera, sem gekk til liðs við þá rauðu í sumar, hefur verið duglegur að tjá sig við fjölmiðla frá því að hann kom til liðsins. Nýjasta útspil Spánverjans er að hughreysta stuðningsmenn Liverpool yfir markaleysi landa síns, Torres og Írans Robbie Keane sem enn hefur ekki skorað fyrir Liverpool.

Í viðtali við Liverpool Echo segir hann m.a. "Þetta er bara upphafið á löngu tímabili, við verðum að vera þolinmóðir. Ég er viss um að við munum bæta okkur og það mikilvægasta er hvernig við klárum tímabilið"

Hann bætir við: "Allir leikmenn ganga í gegnum tímabil sem þeir skora ekki en Fernando og Robbie eru frábærir leikmenn. Skotin þeirra eru ekki að fara í netið sem stendur en ég er viss um að þeir munu skora fjölda marka"



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.