ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Ekki Faldo að kenna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:50 › 23. september 2008
Faldo býst ekki við að stýra liðinu aftur 2010.

Faldo býst ekki við að stýra liðinu aftur 2010. Mynd: Getty

Evrópska Ryder-liðið í golfi tapaði fyrir því bandaríska um helgina með 16 og hálfum vinningi gegn 11 og hálfum. Með sigrinum rufu Bandaríkin sigurgöngu Evrópu sem hafði sigrað þrisvar í röð. Nick Faldo var liðsstjóri evrópska liðsins en liðsmenn hans kenna honum ekki um gengið. Enn frekar vilja sumir sjá hann stýra liðinu aftur eftir tvö ár.

„Hefði ég unnið minn leik gegn Anthony Kim værum við kannski að tala um allt annan hlut. Mitt tap kom Faldo ekkert við,“ segir Spánverjinn Sergio Garcia og Englendingurinn Lee Westwood tekur í sama streng. „Leikurinn sem ég og Sergio Garcia vorum hvíldir í endaði með sigri hjá okkur. Segð þú mér hvort hann gerði þar rétt eða rangt?“

Faldo býst ekki við að stýra liðinu aftur 2010 en annar fyrrverandi liðsstjóri, Bernard Gallagher, vill sjá Faldo áfram. „Faldo verðskuldar annað tækifæri. Hann hefur gert mikið fyrir íþróttina og sérstaklega evrópskt golf,“ segir Gallagher sem sjálfur stýrði liðinu þrisvar og vann aðeins einu sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.