ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Dularfullt draugamark færir Reading jafntefli (Myndband)

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:59 › 22. september 2008
ívar Ingimarsson lék ekki með Reading um helgina.

ívar Ingimarsson lék ekki með Reading um helgina. Mynd: Getty

Reading og Watford skildu jöfn 2-2 í ensku Championship deildinni um helgina. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Reading fékk mark í forgjöf, og það mjög dularfullt mark.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi veifar aðstoðardómarinn að boltinn hafi farið inn fyrir línuna eftir aukaspyrnu utan af kanti. Það þarf engan snilling til að sjá að boltinn fer aldrei yfir línuna og hann er í raun aldrei nálægt því. Engu að síður stóð “markið“ og endaði leikurinn því með jafntefli 2-2.

Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading, sagði í samtali við fjölmiðla eftir leikinn að hann væri tilbúinn til að endurtaka leikinn. Hann sagðist ekki sjá neina ástæðu til að mótmæla því færi það svo að leikurinn yrði endurtekinn. Nicky Hunt jafnaði leikinn fyrir Reading úr vítaspyrnu nokkrum mínútum fyrir leikslok.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.