ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Gamli og nýi, ólík gæfa

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:34 › 20. september 2008
„Engar myndir takk!" segir Pavlyuchenko, á meðan Berbatov gefur af sér.

„Engar myndir takk!" segir Pavlyuchenko, á meðan Berbatov gefur af sér. Getty

Fyrrum framherji Tottenham og núverandi leikmaður Manchester United, Dimitar Berbatov, er óðum að koma sér fyrir í borginni og nýtur hverrar mínútu. Maðurinn sem fenginn var til Tottenham til að leysa hann af, Roman Pavlyuchenko, virðist samt strax vera búinn að koma sér í vandræði og óhætt að segja að upphaf ferlis hans á Englandi byrji í krummafót.

Berbatov sótti samkomu til heiðurs Ryan Giggs fyrir skemmstu og þegar hann kom heim stóð þar mikil hjörð af áhangendum sem óskuðu eftir eiginhandaráritun. Berbi var allur af vilja gerður og hópurin yfirgaf svæðið með bros á vör.

Ánægjan var ekki jafn mikil í kringum eftirmann hans, Pavlyuchenko, í Lundúnum þar sem myndavél áhangenda endaði í molum eftir að Rússinn vildi ekki láta taka mynd af sér með ungum aðdáanda.

Ef satt reynist er haft eftir lögreglunni að Rússinn stæðilegi gæti þurft að borga sekt fyrir að taka bræði sína út á myndavélinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.