ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Rekið Domenech og ég kem aftur!

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:30 › 19. september 2008
Trezeguet ásamt félaga sínum úr Juventus, Alessandro Del Piero.

Trezeguet ásamt félaga sínum úr Juventus, Alessandro Del Piero. Mynd: Getty

Frakkinn David Trezeguet, leikmaður Juventus, segir að góður möguleiki sé á því að hann snúi aftur í landsliðið ákveði franska knattspyrnusambandið að reka Raymond Domenech. Trezeguet hefur fengið fá tækifæri undir stjórn Domenech og var til að mynda ekki valinn í hópinn fyrir EM í sumar.

Í staðinn valdi Domenech unglinginn Bafetimbi Gomis frá St. Etienne sem náði ekki að slá í gegn. Eins og kannski flestir muna féll franska liðið úr leik í riðlakeppninni en öllum á óvörum hélt Domenech starfi sínu. Í kjölfarið tilkynnti Trezeguet að hann væri hættur með franska liðinu.

En Trezeguet sem skorað hefur ófá mörkin fyrir franska liðið í gegnum tíðina sagði á dögunum að góðar líkur væru á því að hann snúi til baka fari svo að Domenech verði rekinn. „Ef Domenech hættir þá er ég tilbúinn að svara kallinu frá nýja þjálfaranum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.