ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Ben Foster úr leik

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:42 › 19. september 2008
Mynd: Getty

Ben Foster, varamarkvörður Manchester United, verður frá keppni næstu tvo mánuðina eftir að meiðst á ökkla í leik með varaliði United gegn Blackburn í gærkvöld. Liðbönd sködduðust og verður Foster, sem hefur glímt við þrálát meiðsli undanfarin tvö ár, frá keppni í að minnsta kosti sex vikur.

„Lukkan er ekki með honum í liði. Hann er búinn að æfa vel undanfarnar vikur og var kominn í verulega gott form. Hann hefur átt það til að meiðast og ég vona að hann fari að komast yfir það,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri liðsins. Pólverjinn Tomasz Kuzcack verður því væntanlega á varamannabekk United í leiknum gegn Chelsea á sunnudag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.