Tveir leikir fóru fram í 1.deild karla í handknattleik í kvöld. Afturelding sigraði Þrótt nokkuð örugglega 22-27 og Selfoss vann góðan útisigur á Gróttu 25-29.
Þróttarar byrjuðu betur á móti Aftureldingu í Höllinni í kvöld og komust í 3-0 og svo 5-1. Þá vöknuðu gestirnir og skorðu nokkur auðveld mörk úr hraðaupphlaupum. Jafnræði var með liðunum um miðjan fyrri hálfleikinn en Afturelding leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 12-14.
Aftureldingarmenn komu ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og skoruðu Þróttarar aðeins tvö mörk á fyrstu 15 mínútunum. Afturelding var komin með örugga átta marka forustu þegar seinni hálfleikur var hálfnaður en slökuðu svo á í lokin.
Sterk innkoma Vladislav Trufan, sem hefur tekið fram skóna að nýju, skipti sköpum fyrir gestina.
Úti á Seltjarnarnesi byrjaði Grótta mun betur en þessum tveimur liðum var spáð í tvö efstu sætin. Það tók Selfyssinga átta mínútur að komast á blað en eftir tíu mínútur var staðan 4-1 Gróttu í vil.
Selfyssingar fundu svo heldur betur taktinn og skorðu sjö mörk gegn einu hjá Gróttu. Staðan í hálfleik var 11-14 Selfoss í vil.
Seinni hálfleikurinn þróaðist svipað og sá fyrri. Grótta byrjaði betur og vann upp muninn en Selfyssingar tóku svo við sér á ný og sigruðu að lokum 25-29. Stig sem munu án efa reynast þeim vel í toppbaráttunni í vetur.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
20 flott mörk frá EM í handbolta
Danir Evrópumeistarar í handbolta
Króatar hirtu bronsið á EM
Guðjón Valur í úrvalsliði EM í Serbíu
Ísland fékk draumadrátt í umspili fyrir HM 2013