Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
FH þurfti sárlega að vinna Fram í gær til þess að halda í við Keflavík í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Þeir lentu hins vegar flatmaga á Laugardalsvellinum í gær þar sem þeir töpuðu, 4-1, fyrir Fram sem komst með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar.
Keflavík getur unnið titilinn í Kaplakrikanum næstkomandi sunnudag þegar toppliðin tvö mætast. Keflavík hefur 46 stig í efsta sætinu og á tvo leiki eftir en FH hefur 38 stig og á þrjá leiki eftir. Keflavík dugar því tvö stig sama hvað gerist til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti síðan 1973.





Klúður sem hann vill gleyma
Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool
Róttæk hönnun á nýja keppnisbíl Ferrari