Sætið undir Luciano Spalletti, knattspyrnustjóra Roma, er orðið heitt eftir tap liðsins í Meistaradeildinni gegn rúmenska liðinu Cluj í fyrrakvöld. Ítalskir fjölmiðlar velta þeirri spurningu upp hvort Spalletti sé kominn á endastöð með liðið og hefur Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Milan, verið orðaður við liðið.
Ancelotti hefur sjálfur ekki átt sjö dagana sæla hjá Milan að undanförnu en liðinu hefur gengið skelfilega í ítölsku deildinni og situr á botninum með ekkert stig eftir tvo leiki. Ef teknir eru með leikir liðsins á undirbúningstímabilinu hefur Milan tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum síðan í júlí.
Carlo Ancelotti gerði garðinn frægan sem leikmaður hjá Roma þar sem hann spilaði í átta ár og vann meðal annars ítalska meistaratitilinn. Sjálfur hefur Spalletti lýst því yfir að honum dauðlangi að stjórna Roma einhvern daginn og því ekki ólíklegt að hann færi sig um set áður en illa fer hjá Milan.





Klúður sem hann vill gleyma
Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool
Róttæk hönnun á nýja keppnisbíl Ferrari