Leikmenn Manchester United gengu vonsviknir af velli eftir að liðinu mistókst að innbyrða sigur á Villa Real á troðfullum Old Trafford. United átti ekki góðan dag en hresstust til muna eftir að Ronaldo kom loks til baka sem varamaður í seinni hálfleik. Niðurstaðan varð samt sem áður 0-0 jafntefli, sem verða að teljast slæm úrslit fyrir Rauðu djöflana. Sömu úrslit urðu úr hinum leiknum í E-riðli, í leik Celtic og Älaborg.
Arsenal heimsóttu Dinamo Kiev á einn erfiðasta útivöll í boltanum og voru stálheppnir að ná 1-1 jafntefli með hæpnu jöfnunarmarki Gallas í blálokin.
Úrslit kvöldsins urðu sem hér segir:
E-riðill:
Manchester United 0 – 0 Villareal
Celtic 0 – 0 AaB
F-riðill
Steaua Bucarest 0 – 1 FC Bayern
0-1 Daniel van Buyten (’15)
Lyon 2 – 2 Fiorentina
0-1 Alberto Gilardino (’11)
0-2 Alberto Gilardino (’42)
1-2 Frederic Piquonne (’73)
2-2 Karim Benzema (’86)
G-riðill:
FC Porto 3 – 1 Fenerbache
1-0 Lisandro López (’11)
2-0 Lucho Gonzales (’14)
2-1 Daniel Guiza (’29)
3-1 Lino (’90)
Dynamo Kiev 1 – 1 Arsenal
1-0 Ismael Bangura (víti) (’64)
1-1 William Gallas (’88)
H-riðill:
Real Madrid 2 – 0 BATE Borisov
1-0 Sergio Ramos (’11)
2-0 Ruud van Nistelrooy (’57)
Juventus 1– 0 Zenit
1-0 Alessandro Del Piero (’76)




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Dramatík í Afríku: Sambía sló út Gana
Klúður sem hann vill gleyma
Neymar búinn að skora 100 mörk á ferlinum
Köttur stal senunni á Anfield
Suarez ekki í byrjunarliði Liverpool